1. Þín félagsaðild
- Umsækjanda er kunnugt um eðli starfsemi Búseta ásamt samþykktum og lögum sem gilda um húsnæðissamvinnufélög.
- Félagsaðild er persónubundin við skráðan félaga.
- Þegar árgjald hefur verið greitt fær félagi úthlutað félagsnúmeri í þeirri röð sem þeir ganga í félagið.
- Félagsaðild veitir rétt til þess að sækja um húsnæði á vegum Búseta.
- Félagsmönnum er skylt að fara eftir samþykktum félagsins og öðrum reglum sem félagið eða stjórn þess setur innan marka samþykktanna og laga.
- Atkvæðisrétt á fundum félagsins öðlast félagsmenn við sjálfræðisaldur.
- Félagsmenn geta sagt sig úr félaginu og skulu þeir gera það með sannarlegum hætti. Hafi félagsmaður ekki greitt árgjald tvö ár í röð skal hann strikaður af félagsskrá í lok síðara ársins sem hann greiðir ekki félagsgjaldið.
2. Félagsgjald og gildistími
- Félagsaðild er ótímabundin og endurnýjast árlega komi ekki til uppsagnar.
- Félagsaðild er gild frá greiðsludegi og eitt ár fram í tímann.
- Inntökugjald og árlegt félagsgjald er ákveðið á aðalfundi Búseta.
- Einstaklingar undir 18 ára aldri borga hálft félagsgjald, einnig árið sem þeir verða 18 ára.
3. Greiðsla félagsgjalda
- Árlegt félagsgjald er skuldfært með greiðslukorti.
- Áskriftartímabilið er 12 mánuðir frá þeim degi sem skráning á sér stað.
- Kreditkort eru skuldfærð daginn áður en áskrift rennur út.
- Kreditkortanúmer eru ekki geymd á vefþjónum Búseta, búið er til sérstakt sýndarnúmer sem notað er við endurnýjunargreiðslur.
- Ef félagsmaður skiptir um kreditkort þarf að uppfæra þær upplýsingar á Minn Búseti.
- Til þess að koma í veg fyrir sjálfvirka greiðslu þarf uppsögn á félagsaðild að berast 30 dögum fyrir endurnýjun.
- Uppsögn félagsaðildar fer fram í gegnum mínar síður undir breyta félagsaðild.
- Til að veita sem besta þjónustu geymir Búseti upplýsingar um nafn, heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer og kennitölu.
- Meðferð persónuupplýsinga Búseta er í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
- Búseti leggur áherslu á öryggi og trúnað þegar um er að ræða upplýsingar sem snerta félagsmenn og brýnir fyrir starfsmönnum að halda þann trúnað.