Eins og fram kemur hér að ofan er samfélagsábyrgð ein af grunnstoðum í starfsemi og stefnu Búseta og leggur félagið metnað í að vinna að jafnvægi milli efnahags, umhverfis og samfélags með sjálfbærni að leiðarljósi. Búseti styður Global Compact alþjóðasamning Sameinuðu þjóðanna og tekur með virkum hætti mið af heimsmarkmiðunum um leið og félagið skuldbindur sig til að stefna og starfshættir séu í samræmi við hann. Siðareglur fyrir birgja Búseta eru settar í samræmi við tíu meginreglur UN Global Compact. Gerð er krafa til birgja Búseta að þeir uppfylli siðareglurnar sem lágmarksviðmið og að þeir geri sömu kröfu til sinna birgja. Tilkynna ber Búseta ef grunur vaknar um brot á reglunum. Ef eftir því er leitað þurfa birgjar að geta staðfest að þessum siðareglum sé fylgt.
Búseti hagar innkaupum sínum þannig að þau styðji stefnu félagsins um sjálfbærni.
Búseti:
Við innkaup á vörum og þjónustu skal gæta jafnræðis, gagnsæis og að hagstæðasta tilboði sé tekið að teknu tilliti til greiningar á öllum þáttum sem stýra vali á samningaðilum. Gerðar eru kröfur um að vörur og þjónusta sem Búseti og dótturfélag kaupir uppfylli kröfur um gæði og þarfir hverju sinni. Auk þess eru gerðar ákveðnar kröfur til einstakra birgja. Við stærri innkaup leitast Búseti við að gera verðfyrirspurnir eða leitar tilboða. Við mat á hagkvæmni tilboða skal, auk fjárhagslegra þátta, þjónustuþátta og öryggisþátta, taka mið af áherslum um sjálfbærni. Búseti hvetur alla birgja og samstarfsaðila til að innleiða siðareglur í sinni starfsemi og birta upplýsingar þess efnis. Ef framkvæmd er verðkönnun fyrir kaup á vöru eða þjónustu skal þátttakendum verðkönnunar kynnt fyrirfram vægi þeirra þátta sem hafðir eru til hliðsjónar s.s. verð, gæði, þjónusta, öryggi og UFS viðmið.