Aðalhönnuður húsanna Aðalheiður Atladóttir verður á staðnum til að svara fyrirspurnum.
Áhugsamir geta skráð sig á fundinn hér: SKRÁNING Á KYNNINGARFUND
Kynningarfundurinn verður haldin á Hótel Sögu kl. 17:30
Við Keilugranda 1-3, 5-7, 9 og 11 verða fjögur fjölbýlishús með samtals 78 íbúðum. Auk þess verður á lóðinni sérstætt hús fyrir hjól sem íbúar í Keilugranda 1-3, 9 og 11 hafa aðgang að. Allar íbúðir á efri hæðum hafa svalir og íbúðir á jarðhæðum hafa sérafnotareiti. Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar sumarið 2020. Aðalhönnuðir eru Aðalheiður og Falk hjá A2F arkitektum.
Hér getur þú skráð þig til að fá upplýsingar um verkefnið við Keilugranda 1-11
Til að geta sótt um íbúð verður þú að vera félagsmaður í Búseta. Íbúðir í nýbyggingum Búseta eru auglýstar á föstu verði og félagsnúmer ræður röð umsækjenda.