Aðalfundur Búseta verður haldinn miðvikudaginn 18. maí nk. kl. 17:00 á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum Búseta.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
- Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
- Ákvörðun um fjárhæð inntökugjalds og árlegs félagsgjalds.
- Ákvörðun um stjórnarlaun.
- Ákvörðun um framlag til varasjóðs.
- Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins.
- Kosning formanns.
- Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
- Kosning eins varamanns til tveggja ára.
- Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs.
- Önnur mál.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum. Atkvæðisrétt á fundinum hafa skuldlausir félagsmenn. Fundarboð birtist í Fréttablaðinu 29. apríl sl. Formenn og gjaldkerar búsetufélaga fá einnig fundarboð.
Búseti hsf. samstæðuársreikningur 2021