Aðalfundur Búseta verður haldinn fimmtudaginn 27. maí nk. kl. 17:00 á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Aðalfundastörf verða samkvæmt samþykktum. Félagsmenn sem hyggjast mæta á fundinn eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku sína. Skráning fer fram hér
Dagskrá samkvæmt samþykktum:
- Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
- Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
- Ákvörðun um fjárhæð inntökugjalds og árlegs félagsgjalds.
- Ákvörðun um stjórnarlaun.
- Ákvörðun um framlag til varasjóðs.
- Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins.
- Kosning formanns.
- Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
- Kosning eins varamanns til tveggja ára.
- Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs.
- Mál sem tiltekin eru í fundarboði.
- Önnur mál.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum. Fundarboð birtist 7. maí í Fréttablaðinu. Formenn og gjaldkerar búsetufélaga fá einnig fundarboð.
Búseti hsf. 2020 Samstæðuársreikningur